Þú hvarfst

Þú hvarfst

þér sjálfum og okkur

hvarfst

inn í höfuð þitt

dyr eftir dyr luktust

og gátu ei opnast á ný

þú leiðst

hægt á brott

gegnum opnar bakdyr

bústaður sálarinnar

sál þín er frjáls

límkami þinn hlekkjaður 

við líf

sem ekki er hægt að lifa

þú horfir framhjá mér

tómum augum

engin fortíð

engin framtíð

engin nútíð

við fegnum aldrei að kveðjast.

               Tove Findal Bengtsson

                snúið úr dönsku af Reyni Gunnlaugssyni          

 

Þetta ljóð er mér hugstætt þessa dagana. Um þessar mundir eru tvö ár síðan Þröstur bróðir fór snögglega frá okkur og svo er hún elskuleg mamma mín að hverfa alltaf meira og meira frá okkur vegna hins ömurlega sjúkdóms alzheimers. En svona er þetta bara og ekkert við því að gera. Þetta verður víst að hafa sinn gang.  
 

 


Hver er munurinn á þessu

og nauðgun? Manndrápstilraun er í mínum augum ekkert verri glæpur en nauðgun jafnvel miklu verri.
mbl.is Dæmdur í 5½ árs fangelsi fyrir manndrápstilraun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hneyksli

Hvað ætli hann þurfi að sitja lengi inni?

mbl.is Tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott að gera grín af sjálfri sér

Það er til yndisleg saga um það þegar ég keyrði alveg sjálf til Seyðisfjarðar stuttu eftir að við fjölskyldan fluttum hingað austur. Ég er að hugsa um að deila henni með ykkur. 

 

Það var á því herrans ári 1998 að hann Raggi minn varð 30 ára. Mig langaði að gefa honum eitthvað sérstakt. Þegar hann fermdist fékk hann í gjöf bát sem hann og afi hans höfðu smíðað (Raggi vissi ekki að hann ætti að fá bátinn þegar hann var að hjálpa afa sínum að smíða hann). Þegar unglingsárin helltust yfir Ragga þurfti hann pening og seldi bátinn. Ég man nú ekki hvernig en allavega fann ég eiganda bátsins á norðfirði hringdi í hann og gat talið hann á að selja mér bátinn, sem hann gerði. Þetta varð því afmælisgjöfin það árið. Raggi var að vinna á Seyðisfirði á þessum tíma og kom bara heim um helgar. Þar sem afmælið var í miðri viku varð ég náttúrulega að fara þangað með bréf upp á að Ragnar væri orðinn eigandi bátsins og afmælisköku. Ákveðið var að Karen yrði heima hjá ömmu en við Valdimar færum á Seyðisfj. (Ég vil taka það fram áður en lengra er haldið að Raggi á afmæli í febrúar og við fluttum austur í okt árið áður, semsagt 4 mánuðum áður og ég aldrei komið á Seyðisfj.) Raggi átti von á okkur seinnipartinn. Hann hafði reynt að lýsa leiðinni fyrir mér og sagði mér að beygja ætti til hægri rétt áður en kæmi í sjálfan bæinn á Egilsstöðum og keyra svo ca 30 km.og þá ætti Seyðisfj. að blasa við. Þegar ég beygði svo til hægri áður en komið var á Egilsst. stillti ég kílómetramælinn á núll og ætlaði að fylgjast með hvernær þessi Seyðisfj. kæmi. Semsagt eftir 30 km samkvæmt upplýsingum frá Ragga. Nú þegar mælirinn sýndi 30 km var ég stödd, ja ég veit ekki allveg hvar en þetta gat ekki verið Seyðisfj. Svo ég hélt áfram og áfram og hvergi neinn Seyðisfjörður. Hvaða rugl var þetta í Ragga, þetta er sko miklu meira en 30 km. Jæja ég hélt bara áfram og viti menn löngu löngu seinna blasti við bær. Hjúkket ég var komin. Ég spurði til vegar og var mér þá tjáð að ég væri stödd í Borgarfirði Eystri. Úps ég hafði semsagt gert eitthvað vitlaust og keyrði því eins og BRJÁLAÐINGUR til baka, Raggi átti jú von á mér seinnipartinn, sko þennan dag. Rétt áður en ég kom á Seyðisfj. varð Valdimar bílveikur, enda búinn að vera í þvílíkum loftköstum, og ældi sig allan út. Ok ok við komumst, ég eitthvað pínu pirruð án þess þó að sína það opinberlega, Valdimar útældur og klukkan eitthvað meira en seinnipartur. Þegar við svo hittum afmælisbarnið hafði hann orð á því hvað við höfðum verið lengi á leiðinni. „ Jú ég viltist aðeins“ varð mér á orði. Raggi hló og spurði „Ekki fórstu alla leið á Eyða?“  Ég hugsaði með mér að fyrst hann sagði alla leið á Eyða hlyti alla leið á Borgarfjörð Eystri að vera mjög mikið svo ég sagði „Nauts, ekki svo langt“. Jæja Raggi varð ánægður með bátinn og heimleiðin var styttri. En þetta er nú ástæðan fyrir því að mér er ekkert vel við Borgarfjörðin. Það var svo ekki fyrr en löngu seinna að ég þorði að segja Ragga sannleikann og ég ætla ekki að lýsa því hvað hann hló mikið og gerir enn ef það er minnst á þetta. HHHHaaaallllóóó  gamall brandari. En ég held að hann sé hættur að hlæja því í sumar þá villtist hann í Kringlunni. Heheheheheheheheh og ætlaði aldrei að komast þaðan út. Sá hlær best sem síðast hlær.


Ja hérna hér.

Ég á ekki orð yfir fréttinni um öldruðu hjónin sem þurftu að bíða í 6
daga eftir viðbrögðum frá félagsþjónustunni, eftir að nágranni þeirra
hafði hringt þrjá daga í röð til að fá einhverja aðstoð fyrir þau.
Enginn frá félagsþjónustunni vildi koma í viðtal við fjölmiðla,
örugglega allir uppteknir við að þjónusta skjólstæðinga sína.

Aðgát skal höfð í nærveru sálar

Mig langar að koma með smá ábendingu. Ég heyri svo oft fólk segja í
"gríni" " Ég er örugglega komin/nn með Alzheimers" eða "Hvað er þetta
með þig ertu með Alzheimers eða hvað". Málið er að við sem þekkjum til
þessa sjúkdóms finnst þetta akúrat ekkert grín. Ég tek þetta samt held
ég mis nærri mér og ég hef alveg örugglega sjálf sagt þetta
einhverntíman en mig langaði bara aðeins að minnast á þetta og kannski
fara einhverjir að hugsa sig tvisvar sinnum um áður en tekið er svona
til orða.

Kominn tími

á smá blogg. Það er nú orðið ansi langt síðan að ég kíkti hér inn síðast, svo langt að ég var búin að gleyma lykilorðinu. Við fjölskyldan fórum suður um Hvítasunnuhelgina og áttum yndislega daga með fólkinu okkar þar. Það er alltaf erfiðara og erfiðara að kveðja og halda aftur af stað austur, þó að auðvitað sé alltaf gott að koma heim. Bara að ég gæti tekið alla með heheheheheh. 

Jæja svo kom sjómannahelgin og hún var ansi skemmtileg. Þegar ég flutti hingað austur þá fyrst tók maður eftir þessari helgi, ég segi helgi því hér fyrir austan er það öll helgin sem er undirlögð í skemmtanahöldum. Ansi skemmtilegt það.

Þessi helgi sem var að líða var mjög skemmtileg líka, en á laugardaginn hélt Alcoa hátíð hér í Fjarðabyggð. Frábær dagur og frábært veður. Það sem var yndislegast við þetta allt saman var að ég fékk gesti. Þorgeir frændi minn var að vinna við að setja upp hátíðina því fyrirtækið sem hann vinnur hjá, Truenorth, sá um herlegheitin fyrir Alcoa. Því miður var Þorgeir frekar lítið hjá okkur en við fengum í staðin að hafa Maríu, Valentínu og Óðinn Flóka. Nú eru þau farin og ansi tómlegt á heimilinu. En þó að tíminn hafi ekki verið mikill með þeim þá var hann vel nýttur og þakka ég þeim bara kærlega fyrir að hafa verið hjá okkurSmile. Takk gullin mín, þúsund kossar og knús.

 

 


Sumt fólk er fífl

Jahá en hann var búinn að vara stráksa við og hvað er þá hægt að gera annað? Shocking
mbl.is Skaut nágrannann til bana fyrir að ganga á grasinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílíkt rugl

og svo til að kóróna ruglið þá fylgir hvar hægt sé að nálgast þennan „leik“.
mbl.is Nauðgunarþjálfun á Netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú þarf ekki lengur að velta því fyrir sér

hvað á að kjósa. En mikið óskaplega skammast ég mín stundum að vera í flokki spenndýra sem kallast manneskjur. Þessi hópur spenndýra er að því er virðist ansi óþroskaður, samanber þá háu herra sem kallast þingmenn. Þessi grey haga sér eins og litlir krakkar í leikskóla. Núna eru Framsóknarmenn í ógurlegri fýlu og finnst sem allir séu vondir við þá. Þegar Jón og Geir tilkynntu fjölmiðlum að stjórnarslit höfðu orðið var Jón spurður að því hvort hann teldi að trúnaðarbrestur hafi orðið á milli hans og Geirs. Hann taldi svo ekki vera fyrr en daginn eftir þá allt í einu var komið annað hljóð í strokkinn og Sjálfstæðismenn orðnir svo vondir og ómerkilegir. Hvers vegna gat hann ekki sagt þetta þegar Geir sat við hliðina á honum? Kannski fattaði hann þetta bara ekki svona einn og sjálfur, kannski var honum hjálpað með að fatta plottið.  Nei ekki veit ég en eitt veit ég þó að þetta er svo mikil dramatík allt saman að framleiðendur Dallas höfðu ekki svo frjótt ímyndurnarafl.

Í Silfur Egils í dag var verið að fjalla um auglýsingu Jóhannesar í Bónus þegar hann hvatti fólk til að strika yfir nafn Björns Bjarnasonar. Einn að viðmælendum Egils var Pétur Tyrfingsson. Hann kom með einhverja kenningu af plottinu sem lá á baki þessarar aulýsingar. En hún var á þá leið að kjósendur væru svo vitlausir að margir hefðu kosið Samfylkinguna en strikað yfir nafn Björns og þar með gert atkvæðaseðilinn ógildann. Ég er ekki alveg að fatta þetta plott en það sem stakk mig var það að Pétur skildi leyfa sér að segja að kjósendur væru svo vitlausir, í sjónvarpsþætti. Svona blaður er í lagi manna á milli en ekki á opinberum vettvangi. Eins vissi Pétur alveg upp á hár hvernig Geir hugsaði myndun nýrar stjórnar og fór mikinn í að deila því með sjónvarpsáhorfendum. Fyrst hefði Geir hugsað svona og svo gert þetta svona. Nei ég veit ekki hvernig Pétur veit hvernig fólk hugsar nema kannski að Geir sé i sálfræðimeðferð hjá honum, en þá má hann náttúrulega ekki uppljóstra hvað þeim fer á milli. 

Það verður gott að komast í vinnuna á morgun inn í leikskóla og vera innan um krakkana sem hafa sama þroskastig og sumt fullorðið fólk en hafa það samt framyfir fullorðna fólkið að vera yndisleg og kunna að skammast sín þegar þau gera eitthvað sem ekki er viðurkennd hegðun og segja fyrirgefðu frá hjartanu. Hvenær glatar maður þessum hæfileika þegar maður verður það sem er kalla fullorðinn?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband