Systur að eilífu

Ung kona var í heimsókn hjá móður sinni og  drakk íste til þess að kæla sig í
mesta sumarhitanum.Um leið og þær töluðu um lífið, hjónabandið, ábyrgðina og
skuldbindingar fullorðinsáranna hristi móðirin klakamolana  í glasi sínu svo að
telaufið þyrlaðist upp og leit hreinskilnislega á dóttur sína: „Gleymdu ekki
systrum þínum, þær verða  því mikilvægari sem þú eldist. Einu gildir hversu
mikið þú elskar manninn þinn eða börnin sem þú kannt að eignast, þú munt alltaf
þarfnast systra. Mundu t.d. eftir að lyfta þér upp með þeim. Með systrum á ég
við ALLAR konurnar í lífi þínu. Ég á við vinkonurnar, dætur þínar og aðrar
konur sem þér eru tengdar blóðböndum. Þú munt þarfnast annarra kvenna. Þannig
er þetta bara."
       „Þetta er skrýtið ráð," hugsaði unga konan. „Ég er nýgift, nýkomin inn í
hjónaheiminn. Nú er ég gift kona, svo sannarlega fullorðin manneskja. Maðurinn
minn og fjölskyldan sem við vonumst til að eignast verða allt sem skiptir máli
í lífi mínu."
Þótt unga konan væri ekki ginnkeypt fyrir ráðum móður sinnar í þetta sinn fór
þó svo að hún tók mark á henni. Hún ræktaði sambandið við systur sínar og
eignaðist fjölda vinkvenna. Þegar tímar liðu varð henni ljóst að mamma hennar
hafði rétt fyrir sér.
Tíminn og framvinda lífsins marka spor á konur en systur eru óumbreytanlegar.
Sannleikurinn kristallast í eftirfarandi:


Tíminn líður hjá, lífið á sér stað, fjarlægðir skilja menn að, börn vaxa úr
grasi, atvinnutækifæri koma og fara, ástin getur orðið að vana, menn gera
einfaldlega ekki það sem vænst er af þeim, hjörtu bresta, foreldrar deyja,
samstarfmenn gleyma greiðunum sem þeim eru gerðir og framabrautin tekur enda EN
Systur eru enn til staðar óháð tíma og fjarlæg. Góð vinkona er aldrei í meiri
fjarlægð en svo að það megi nálgast hana á einhvern hátt.  Þegar erfiðleika
 ber að höndum og þú ert ein þíns liðs þá bíður ævinlega einhvers staðar systir
með útrétta arma þér til hjálpar. Stundum eru þær jafnvel reiðubúnar að ganga
með þér spölkorn eða líta við og rjúfa þar með  einmanaleikann..
       Vinkonur, dætur, ömmustelpur, tengdadætur, systur, mágkonur mæður, ömmur,
föðursystur, móðursystur, systradætur, bróðurdætur og frænkur af ýmsu tagi í
stórfjölskyldunni eru okkur öllum til blessunar. Veröldin væri önnur án kvenna.
Þegar við lögðum af stað í það ævintýri sem fylgir því að vera kona þá höfðum
við litla hugmynd um þá gleði og sorg sem fram undan væri. Við gerðum okkur
heldur ekki grein fyrir hversu mjög við kynnum að þarfnast hver annarrar.
Þannig verður það áfram.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 29.5.2008 kl. 08:18

2 identicon

Knús mín kæra

Lotta (IP-tala skráð) 29.5.2008 kl. 14:51

3 Smámynd: Guðrún Hauksdóttir

Það er gott að vera kona  

knúsiknús

Guðrún Hauksdóttir, 2.6.2008 kl. 12:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband