Náttúrusinnar
29.6.2008 | 22:26
Ég held að mikill meirihluti af tónleikagestum náttúrutónleikana í Laugardalnum hafi ekki verið þarna til að mótmæla virkjunum eða náttúruspjöllum, heldur til að berja Sigurrós og Björk augum. Enda greinalega ekki miklir náttúrusinnar þarna á ferð miðað við draslið sem það skildi eftir sig. Hvað ætli að það hefðu komið margir ef ég hefði mætt með bongótrommur og verið að spila af sama tilefni? Æi, þessir náttúrverndargrey eru ekki alveg að gera sig.
Athugasemdir
Ja, ég var nú þarna og er ég nú svo langt frá því að vera einhver náttúruverndarsinni Var þarna bara með Halldóri og hlustaði á Sigurrós. fór svo út í bíl og hlustaði á útvarpið þegar Björk byrjaði þangað til Halldór kom.
En ég hefði sko mætt og hlustað á þig á bongótrommur, það er sko alveg víst...
Bjarney Hallgrímsdóttir, 30.6.2008 kl. 14:27
Pass!
LKS - hvunndagshetja, 30.6.2008 kl. 22:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.