Og hvað á maður svo að kjósa?
7.5.2007 | 23:57
Ég hef ekki hugmynd um hvað ég á að kjósa. Mikið held ég að það sé gott
að vera með það á hreinu. Mér finnst atkvæði mitt það dýrmætt að ég vil
ekki sóa því. Kannski er ástæðan að ég treysti bara engu af þessu liði
eða að ég er bara svo óþroskuð að ég fatta þetta bara ekki. Þegar ég verð orðin stór þá ætla ég að vera með þessi mál á hreinu.

Athugasemdir
Ég er sko búin að ákveða mig, ég vel flokkinn af þeim einstaklingum sem hann inniheldur. Ég ætla að kjósa ........ hahaha
Kristjana Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 8.5.2007 kl. 12:08
Flýttu þér þá að stækka vinan litla mín....
Badda (IP-tala skráð) 8.5.2007 kl. 20:01
Einstaklingar sem eru í framboði þurfa að fylgja flokkslínum, hvað sem sannfæring þeirra segir. Rifjum upp Dagnýju Jóns, hún hafði sínar sannfæringar en þurfti að beygja sig undir flokkslínur. Ég er að velta þessu fyrir mér og skoða hvað flokkarnir standa fyrir. Mikilvægast finnst mér að horfa gagnrýnum augum á það sem sagt er og finna sjálfur út hvað stendur á bakvið. Skattalækkun þýðir kannski afnám hátekjuskatts en er samt skattalækkun og það hljómar vel.
Kristjana Atladóttir, 9.5.2007 kl. 11:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.